Harmljóð Snæfellsjökuls

Harmljóð Snæfellsjökuls

(Glacier’s Elegy)

fyrir söngvara, raddgervil, flautu, effect pedala og fartölvu

(2019)

Höfundar og flytjendur: Helgi R. Ingvarsson og Helen Whitaker.

Mynd: Tomas Abela

Harmljóð Snæfellsjökuls er fallegur og róandi ~30 mínútna langur tónlistar gjörningur í 5 hlutum. Harmljóðið er kveðja jökulsins, síðasta kveðjan. Snæfellsjökull stígur fram og ávarpar mannkynið í síðasta sinn og notar tilvísanir úr nokkrum ritum íslenskra bókmennta til að miðla skilaboðum sínum. Textar og ljóð eftir Steingrím Thorsteinsson, Halldór Kiljan Laxness , Stein Steinarr, Anton Helga Jónsson og úr Bárðar sögu Snæfellsáss eru settir í tóna.

Flutningnum fylgir glærusýning á stórum skjá með fallegum myndum og málverkum af Snæfellsjökli og nærliggjandi umhverfi.


  • English

    Glacier’s Elegy is a 30 minute long music-installation in 5 sections for voice, vocoder, laptop and flute. Glacier’s Elegy is inspired by the welfare of our planet. It is the Glacier’s farewell, the final farewell. Snæfellsjökull-glacier steps forward and addresses humankind for the last time and uses references from several works of Icelandic literature to communicate. The references are from works by romantic poet Steingrímur Thorsteinsson, novelist Halldór Kiljan Laxness, modernist poet Steinn Steinarr, and from Bárðar Saga Snæfellsáss. Authors are Helgi R. Ingvarsson and Helen Whitaker.


  • Fyrir tónleikahaldara

    Kröfur:

    -Hljóðkerfi

    -Myndvarpi og stór flötur til að varpa á

    Æskilegt:

    -Myrkvað rými

    -Ljósabúnaður