About + Recordings

Recordings

Recordings of Ingvarsson’s original music are available on all major streaming services:


About

Ferill á íslensku

STUTTUR

Helgi R. Ingvarsson er sjálfstætt starfandi tónskáld. Tónverk hans eru reglulega flutt á Íslandi, Norðurlöndunum og Bretlandi og meðal verkanna eru m.a. fjöldinn allur af kórverkum, sönglögum, hljóðfæraverkum fyrir kammerhópa, sjö óperur og ýmis önnur tilraunakennd verk. Opera Magazine sagði að tónlist Helga væri „skýr og aðlaðandi frá fyrstu mínútu“ (2022). Helgi er með doktorsgráðu í tónsmíðum frá Guildhall School of Music and Drama í London og hefur hlotið stuðning frá Guildhall School Trust, Listamannalaunum, Lista- og Menningarráði Kópavogsbæjar, STEF, Arts Council England og Michael Tippett Musical Foundation í Englandi svo dæmi séu tekin.

LANGUR

Helgi Rafn Ingvarsson er sjálfstætt starfandi tónskáld með aðsetur á Íslandi og Englandi. Tónverk hans eru reglulega flutt á Norðurlöndunum og Bretlandseyjum og meðal verkanna eru m.a. fjöldinn allur af kórverkum, sönglögum, hljóðfæraverkum fyrir kammerhópa, sjö óperur og ýmis önnur tilraunakennd verk. T.a.m. hafa óperur hans verið fluttar yfir þrjátíu sinnum á Íslandi, Svíþjóð og Englandi. Óperurnar „Music and the Brain“ og „Þögnin“ hafa báðar hlotið tilnefningu til Grímunnar og Opera Magazine (UK) sagði að tónlist Helga væri „aðlaðandi frá fyrstu mínútu“ (2022). „Ég hvet tónlistarunnendur til að missa ekki af þessu“ skrifaði Jón Viðar Jónsson gagnrýnandi um Þögnina og Silja Aðalsteinsdóttir (Mál og Menning) skrifaði: „Tónlistin er mjög fjölbreytt og hæfir efninu vel, er tilfinningarík og seiðandi, og spannar allan tilfinningaskalann.” (2022) Arndís Björk Ásgeirsdóttir hjá Heimildinni skrifaði um sönglag Helga „Vetrarþoka“ árið 2023: „Vetrarþoka Helga R. Ingvarssonar var eins og impressíónískt vatnslitamálverk.“ 5against4.com sagði að verk hans „Vefur“, flutt af Kammersveit Reykjavíkur á Myrkum Músíkdögum 2020 hafi verið „sláandi áhrifaríkt.“

Af verkum hans á streymisveitum má m.a. minnast á „I only write alto flute parts when I miss you“ og „Rhythmic Robins / Taktfastir Svartþrestir“ fyrir flautu og píanó (2023), kórverkin „Nú er á himni og jörð“ og „Heim himnaveginn“ flutt af Kordíu, kór Háteigskirkju og gefið út á plötu þeirra „Himindaggir“ 2023, kvintettinn „ELEKTRA“ á hljómplötu Elektra Ensemble (2019), og sönglagið „Vetrarþoka“ á plötu Rannveigar Káradóttur sópran „Krot“ frá 2016. Hljómplatan „Castle in air/Loftkastali“ með tónlist fyrir strengi eftir Helga kom út 2015. Jónas Sen tónlistargagnrýnandi lýsti henni sem „ævintýraheim þar sem hver einasta tónahending hafði merkingu.“

Helgi er með doktorsgráðu í tónsmíðum frá Guildhall School of Music and Drama í London (2018) þar sem hann var studdur af Guildhall School Trust og hlaut m.a. heiðurstitilinn „Composition fellow“. Hann lagði einnig stund á tónsmíðar við Listaháskóla Íslands og Tónlistarháskólann í Malmö (Musikhögskolan i Malmö) sem er partur af Háskólanum í Lundi (Lunds Universitet).

Longer biog

Helgi R. Ingvarsson is a versatile composer, conductor, singer and lecturer based in Brighton, England, UK. His music is regularly premiered and performed in the Nordic countries and Great Britain. Helgi has, amongst other works, written 6 operas to date, and is currently working on his 7th one. His operas have been performed internationally approximately 30 times, with his 5th opera, Music and the Brain (2021), having received 16 performances to date in Iceland, Sweden and England. Opera magazine described Ingvarsson’s music as being “immediately engaging” (2022). Other notable works by Ingvarsson include his numerous vocal works, works for solo flute and piano premiered by Helen Whitaker and Katherine Tinker (2023), the playful “Random notes I found in the street” (2021) commissioned by Personal Clutter (UK), his instrumental quintet “ELEKTRA” (2019) commissioned by Elektra Ensemble (ICE), the art song “Vetrarþoka / Winter Fog” (2016) commissioned by soprano Rannveig Káradóttir (GER), and “Loftkastali / Castle in Air” (2013) for solo cello which has been performed by fantastic cellists like Guthny Jonasdottir of the Iceland Symphony Orchestra (ICE), Clare O’Connell of the Chroma Ensemble (UK), and Martin Johnson section leader at RTE National Symphony Orchestra (IRE). Ingvarsson’s original music for strings was described by Icelandic critic Jonas Sen to have “a strong personal style” which “echoes the past” but with a completely unique inspiration.

Other groups that have performed Ingvarsson’s music include the Chroma Ensemble (UK), Reykjavik Chamber Orchestra (ICE), The Composers’ Ensemble (UK), Concorde Ensemble (IRE), Jökla Ensemble (ICE) and Kordia Chamber Choir (ICE).Ingvarsson holds a doctorate degree in music composition (DMus) from the Guildhall School of Music and Drama London (2018). His time there was generously supported by the Guildhall School Trust. His research is titled “Opening Opera: Developing a framework that allows for the interactive creative processes of improvised theatre in the productions of new music-dramas.”

Entertainment-focus.com described Helgi’s ‘4.1 Earths’, which was premiered by ALDAorchestra (UK) in Brighton in 2016, as being “assembled with a powerful crescendo. I particularly loved the string sections and the double bass and the piano seemed to play off one another cleverly. […] The concluding piece, Vetrarthoka [also by Helgi], […] was illuminating, delicate and beautiful.” 5against4.com had this to say about Helgi’s piece Vefur / Loom, written for the Reykjavik Chamber Orchestra: “The final day of Iceland’s 2019 Dark Music Days festival was characterised by a back-and-forth between prosaic and profound. […] Helgi R. Ingvarsson’s new work Loom […] made a striking impression […] The orchestra […] struck an interesting balance between sounding individual and acting as a group.”

Helgi has been awarded and supported in the past by e.g. The Michael Tippett Musical Foundation, Guildhall’s Doctoral Candidate Development Fund, The Artists’ Salaries in Iceland, Tónskáldasjóður RÚV (the Icelandic national broadcaster’s composer’s fund), Arts Council England, Rannís research fund Iceland, STEF (copyright management society of Iceland), and Kópavogur Arts Council in Iceland.


Ingvarsson’s music, in a postmodern tonal idiom, is immediately engaging.” 

– Opera magazine (UK) (2022)

“The premiere of Helgi’s new art song was a special and memorable moment in this musical celebration.”

– Guthrun Olafsdottir, Hafnaborg Song Festival (ICE) (2025)

“Ingvarsson’s art song Winter Fog was like an impressionist watercolour painting.” 

– Heimildin newspaper (ICE) (2023) 

The music is full of emotion and is mesmerising.” 

– Silja Athalsteinsdottir, Mal og Menning Magazine (ICE) (2022)

Ingvarsson’s music carries the composer’s strong personal style.” 

– Jónas Sen, Fréttablaðið newspaper (ICE) (2015)


Some photographs from performances of Ingvarsson’s music